Vor 2015
Margar myndir ömmu
Fyrirlestraröð RIKK í tilefni 100 ára kosningaréttar kvenna á Íslandi.
Fyrirlestrarnir eru haldnir með styrk frá framkvæmdanefnd um 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna og í samstarfi við Þjóðminjasafnið, á föstudögum kl. 12.00-13.00.
Við vekjum athygli á því að vegna mikils áhuga á fyrirlestraröðinni höfum við flutt fyrirlestrana úr fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands.
16. janúar
Erla Hulda Halldórsdóttir, nýdoktor í sagnfræði við HÍ: „Hvers vegna amma? Saga og sjónarhorn.“
Irma Erlingsdóttir, forstöðumaður og dósent við HÍ: „Sagan, endurskrif og uppskafningur.“
Bjarki Karlsson les ljóð.
23. janúar
Helga Kress, prófessor emeritus í almennri bókmenntafræði við HÍ: „Kvenfrelsiskonur. Um birtingarmyndir íslenskrar kvennabaráttu í bókum og blöðum frá fyrri hluta 20. aldar.“
30. janúar
Ármann Jakobsson, prófessor í bókmenntum fyrri alda við HÍ: „Tvær afasystur. Hulda Jakobsdóttir og Katrín Thoroddsen.“
6. febrúar
Kristín Ástgeirsdóttir, sagnfræðingur og framkvæmdastýra Jafnréttisstofu: „En amma hafði á öldunni gát og aflann úr fjörunni dró.“
13. febrúar
Súsanna Margrét Gestsdóttir, aðjúnkt við Menntavísindasvið HÍ: „Það var sól þann dag.“ Súsanna Margrét Gunnarsdóttir frá Njálsstöðum í Norðurfirði.“
20. febrúar
Annadís G. Rúdólfsdóttir, lektor í aðferðafræði rannsókna við Menntavísindasvið HÍ: „Óþekk(t)ar ömmur.“
Berglind Rós Magnúsdóttir, lektor í menntunarfræðum við HÍ: „Makalausar efristéttarformæður í baráttu við feðraveldið.“
27. febrúar — Ath. að fyrirlesturinn er haldinn í stofu 132 í Öskju – náttúrufræðahúsi HÍ að Sturlugötu 7.
Guðni Th. Jóhannesson, dósent í sagnfræði við HÍ: „Vonir ömmu, veruleiki pabba. Munur kyns og kynslóða.“
6. mars — Hátíðarsalur Háskóla Íslands í Aðalbyggingu
Dagný Kristjánsdóttir, prófessor í íslenskum nútímabókmenntum við HÍ: „Hvað vildu þær — hefðu þær verið spurðar?“
13. mars — Stofa 102 á Háskólatorgi
Sólveig Anna Bóasdóttir, prófessor í guðfræðilegri siðfræði við HÍ: „En þetta var venjan, konurnar gáfu …“ Sólveig Stefánsdóttir (1891–1967) Vogum í Mývatnssveit.
20. mars — Stofa 102 á Háskólatorgi
Kristín Svava Tómasdóttir, sagnfræðingur og ljóðskáld: „Hið mikla djúp, hið litla tár“: Langamma, mamma hennar og íslenska konan.
27. mars — Stofa 102 á Háskólatorgi
Sigrún Alba Sigurðardóttir, lektor í menningarfræði við LHÍ og doktorsnemi við HÍ: „Tilkall til fortíðar. Saga fyrir konu sem ekki átti sögu.“
10. apríl — Stofa 132 í Öskju
Guðmundur Hálfdanarson, prófessor í sagnfræði við HÍ: „„… í senn stórbrotin kona í gömlum stíl og ein af brautryðjendum hinna nýju kvenrjettinda.“ Guðrún Björnsdóttir mjólkursölukona.“
17. apríl — Stofa 102 á Háskólatorgi
Ingibjörg Sigurðardóttir, bókmenntafræðingur og aðjúnkt við Hug- og félagsvísindasvið HA: „Á eigin vegum. Um sjálfsmyndasköpun Ingibjargar Steinsdóttur leikkonu (1903-1965).“
8. maí — Stofa 132 í Öskju
Silja Bára Ómarsdóttir, aðjúnkt við Stjórnmálafræðideild HÍ: „Amma gat allt nema gengið niður stiga.“
Málþing
16. maí
„Veröld sem ég vil.“ Þróun borgara- og þegnréttinda kvenna í 100 ár.“
„Vér heilsum glaðar framtíðinni“ (tilvitnun í Bríeti Bjarnhéðinsdóttur, 7. júlí 1915) í Landsbókasafni í tilefni 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna, 16. maí 2015 í Landsbókasafninu.
Opinber fyrirlestur
26. febrúar
Mary McDonald-Rissanen, dósent í ensku við Háskólann í Tampere: „Lesið í sjálfsævisöguleg skrif kvenna á Prins Edward-eyju.“
19. mars
Rochelle Burgess, lektor við London Metropolitan University: „When women speak: Seeking the voices of women in global health.“
Haust 2015
Hádegisfyrirlestrar
Athugið að fyrirlestrar RIKK eru nú á fimmtudögum!
17. september
Shaban Darakchi, doktorspróf í kynjafræði og aðjúnkt við búlgörsku vísindaakademíuna: Kyngervi og kynhneigð í Búlgaríu eftir fall Sovétríkjanna.
Fundarstjóri: Rebekka Þráinsdóttir, aðjúnkt í rússnesku.
1. október
Pétur Skúlason Waldorff, doktor í mannfræði frá McGill University og rannsakandi við Eddu Öndvegissetur: Úr vatni á markað: Veikleikar, styrkleikar og kynbundin hlutverk innan virðiskeðju fisks úr Tanganyika vatni, Tansaníu.
Fundarstjóri: Erla Hlín Hjálmarsdóttir, doktorsnemi við HÍ og verkefnisstjóri UNU-GEST.
8. október – Athugið að rabbið verður að þessu sinni í stofu 202 í Odda.
Bindu Malieckal dósent í ensku við Saint Anselm College í Manchester, New Hampshire í Bandaríkjunum: Að vera eða vera ekki með slæðu: Konur og íslam í miðalda-, árnýaldar- og eftirlendutextum.
Fundarstjóri: Guðrún Margrét Guðmundsdóttir doktorsnemi í mannfræði.
26. nóvember
Shanta Balgobind Singh, prófessor í afbrotafræði við KwaZulu-Natal-háskóla, Durban í Suður-Afríku: Women and Policing in South Africa: A 21st Century Perspective.
3. desember – ATH. Fyrirlestrinn átti upphaflega að vera 12. nóvember.
Jón Ingvar Kjaran, doktor í menntavísindum: „Hulinn þúsund slæðum“: Veruleiki samkynhneigðra karlmanna í Íran
Ráðstefnur
1.-2. september
Ráðstefna um konur, fíkn, áföll og meðferð á Grand Hotel.
22.-23. október
Borgaraleg réttindi kvenna í 100 ár. Alþjóðleg ráðstefna í tilefni af aldarafmæli kosningaréttar kvenna í Hörpu. Ráðstefnan fer fram á ensku og er öllum opin.
Dagskrá ráðstefnunnar má finna hér.
20. nóvember
Konur á ráðherrastóli – Málþing í samstarfi við Jafnréttisstofu og Háskólann á Akureyri. Jóhanna Sigurðardóttir fv. forsætisráðherra opnar málþingið með ávarpi, fyrrum kvenráðherrar fjalla um ráðherratíð sína og fræðimenn nálgast efnið frá kynjapólitískum sjónarhóli.
Ömmur á faraldsfæti
Fyrirlestrar úr röðinni „Margar myndir ömmu“ eru fluttir úri á landi í september 2015 í samstarfi við Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands, á Vestfjörðum í samstarfi við Prófessorsembætti Jóns Sigurðssonar og á Akureyri í samstarfi við Hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri. Einnig var ákveðið að leita til heimamanna til að taka þátt í viðburðunum. Í september verða því viðburðir með fyrirlestrum á eftirfarandi stöðum:
• Rannsóknarsetur HÍ, Skagaströnd, 12. september og 19. september
• Rannsóknarsetur HÍ, Vestfjörðum og prófessorsstaða Jóns Sigurðssonar, Ísafirði, 19. september
• Rannsóknarsetur HÍ, Hornafirði, 26. september
• Háskólinn á Akureyri, 26. september