Kristín Svava Tómasdóttir

Kristín Svava Tómasdóttir

Föstudaginn 20. mars flytur Kristín Svava Tómasdóttir, sagnfræðingur og ljóðskáld fyrirlesturinn „„Hið mikla djúp, hið litla tár“: Langamma, mamma hennar og íslenska konan“ í stofu 102 á Háskólatorgi kl. 12-13. 

Athugið að gengið er inn um aðaldyr Háskólatorgs og svo niður hringstiga vinstra megin.

Í fyrirlestrinum mun Kristín Svava fjalla um langömmu sína, Bergnýju Katrínu Magnúsdóttur (1892-1980), og langalangömmu, Guðrúnu Bergsdóttur (1867-1956), og bera lífshlaup þessara tveggja skagfirsku kvenna saman við sögu íslenskra kvenna eins og hún er oftast sögð. Hver er íslenska konan og hvernig falla líf, störf og persónur Bergnýjar og Guðrúnar að sögu hennar?

Bergný Katrín Magnúsdóttir og Guðrún Bergsdóttir

Bergný Katrín Magnúsdóttir og Guðrún Bergsdóttir

Fyrirlesturinn er hluti af fyrirlestraröðinni „Margar myndir ömmu“ sem RIKK heldur í samstarfi við Þjóðminjasafnið og styrkt er af framkvæmdanefnd um 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna.

Viðburðurinn er öllum opinn og er á Facebook.