Helga KressFöstudaginn 23. janúar flytur Helga Kress, prófessor emeritus í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands, erindið „Kvenfrelsiskonur. Um birtingarmyndir íslenskrar kvennabaráttu í bókum og blöðum frá fyrri hluta 20. aldar“ í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins, kl. 12-13.

Út frá þeirri kenningu Virginiu Woolf, í A Room of One’s Own (1929), að saga andstöðunnar gegn kvenfrelsisbaráttunni sé ef til vill merkilegri en saga kvenfrelsisbaráttunnar sjálfrar verður fjallað um baráttu íslenskra kvenna fyrir kosningarétti um og eftir aldamótin 1900 og hvernig hún birtist í bókmenntum tímabilsins, m.a. skáldsögu Stefáns Daníelssonar, Kvenfrelsiskonur, frá 1912 og viðtökum hennar.

Fyrirlesturinn er hluti af fyrirlestraröð RIKK, „Margar myndir ömmu“, sem haldin er í samstarfi við Þjóðminjasafnið og styrkt af framkvæmdanefnd um 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna.