Rashawn Ray

(English below)

Dr. Rashawn Ray heldur níunda fyrirlestur vormisseris í fyrirlestraröð RIKK og Jafnréttisskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna, í samstarfi við félags- og mannvísindadeild á félagsvísindasviði Háskóla Íslands, föstudaginn 21. apríl, kl. 12.00-13.00, í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands. Fyrirlestur hans nefnist: „Uppgangur Black Lives Matter-hreyfingarinnar: Kynþáttur og löggæsla í Bandaríkjunum.“

Dr. Rashawn Ray er dósent í félagsfræði við Maryland-háskóla en var áður Robert Wood Johnson nýdoktor við Kaliforníuháskóla í Berkeley. Rannsóknir hans fást við þau félagslegu ferli sem skapa og viðhalda kynþáttamisrétti og félagslegum ójöfnuði og varpa ljósi á hvernig grasrótarhreyfingar og stefnumótun geta dregið úr slíkri mismunun. Meðfram rannsókna- og fræðistörfum hefur Rashawn tekið mikinn þátt í samfélagsumræðu um kynþáttamisrétti í Bandaríkjunum. Hann hefur meðal annars n fjallað um rannsóknir sínar í fjölmiðlum á borð við New York Times, Huffingston Post, NBC, Fox og NPR.

Í fyrirlestrinum mun Rashawn fjalla um hvernig nýleg morð lögreglunnar í Bandaríkjunum á blökkumönnum hafa endurvakið umræður um kynþætti, glæpi og mismunun. Hann notar gögn úr stórri rannsókn á #BlackLivesMatter og samskiptum lögreglu og borgara til að skoða hvernig undirliggjandi hlutdrægni gegnsýrir löggæsluna og viðheldur kynþáttamismunun. Niðurstöðurnar sýna að svartir og rómansk-amerískir íbúar bera minna traust til lögreglunnar og verða frekar fyrir illri meðferð en hvítir Bandaríkjamenn. Stéttarstaða blökkumanna í millistétt ver þá ekki þeirri tilfinningu að þeir verði frekar fyrir misbeitingu lögreglunnar. Blökkumenn segja þó frá því að myndavélar, sem eru orðnar hluti af útbúnaði lögreglu, séu jákvætt skref í átt að gagnsæi, hlutleysi og réttlæti í löggæslu. Þá mun hann einnig fjalla um hvernig nota má niðurstöður rannsókna við stefnumótun til umbóta á refsivörslukerfinu.

Fyrirlesturinn er á ensku og er öllum opinn.

Finndu viðburðinn á Facebook!

Hádegisfyrirlestraröð RIKK og Jafnréttisskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna á vormisseri 2017 er haldin í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands.

 

The Rise of the Black Lives Matter Movement: Race and Policing in the United States

Dr. Rashawn Ray is the ninth lecturer in the 2017 RIKK – Institute for Gender, Equality and Difference at the University of Iceland & UNU-GEST spring lecture series. His lecture is held in cooperation with the Faculty of Social and Human Sciences at the School of Social Sciences, at the University of Iceland, and will take place on Friday 21 April, from 12.00-13.00, in the National Museum’s lecture hall, and is titled: „The Rise of the Black Lives Matter Movement: Race and Policing in the United States.“

Dr. Rashawn Ray is Associate Professor of Sociology and the Edward McK. Johnson, Jr. Endowed Faculty Fellow at the University of Maryland, College Park. Formerly, Ray was a Robert Wood Johnson Foundation Health Policy Research Scholar at the University of California, Berkeley. Ray’s research addresses the mechanisms that manufacture and maintain racial and social inequality. His work also speaks to ways that inequality may be attenuated through racial uplift activism and social policy. Ray has published over 40 books, articles, book chapters, and op-eds. He’s written for New York Times, Huffington Post, and Public Radio International. Selected as 40 Under 40 Prince George’s County and awarded the 2016 UMD Research Communicator Award, Ray has appeared on HLN, Al Jazeera, NPR, Fox, and NBC. His research is cited in CNN, Washington Post, Associated Press, MSN, The Root, and The Chronicle.

In his talk, Rashawn will discuss how recent killings of Blacks by police have renewed a national discussion about race, crime, and discrimination. Using data from a large study on #BlackLivesMatter and police-citizen interactions, he discusses how implicit bias permeates contributes to racial disparities in policing. Results show that Blacks and Latinos report less trust of and more mistreatment by the police than Whites. Social class does not provide middle class Blacks with protection from perceptions of mistreatment by the police. Nonetheless, Blacks report that body-worn cameras (BWC) are a positive step toward more transparency, objectivity, and equity in policing, though Blacks are more nuanced in what it may take for BWC to be effective. Dr. Ray concludes by discussing a series of policy implications regarding reforming the criminal justice system.

The lecture is in English, open to everyone and admission is free.

The event is on Facebook!

The RIKK & UNU-GEST lecture series in the spring semester 2017 is held in collaboration with The National Museum of Iceland.