Sunnudagskvöld með Svövu

Í tengslum við sýningu Þjóðleikhússins, Eldhús eftir máli – Hversdagslegar hryllingssögur eftir Völu Þórsdóttur, sem byggði á fimm smásögum Svövu Jakobsdóttur, héldu Þjóðleikhúsið og Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum fimm Sunnudagskvöld með Svövu þar sem boðið var upp á fyrirlestur, kvöldverð, leiksýningu og umræður.

Svava Jakobsdóttir hafði með skáldsögum sínum, smásögum og leikritum mikil áhrif á íslenskt menningarlíf og samfélag á ofanverðri tuttugustu öld, en með verkum sínum miðlaði hún meðal annars skarpri sýn á stöðu konunnar í samfélaginu. Með sýningunni Eldhús eftir máli heiðraði Þjóðleikhúsið minningu Svövu. Hún hefði orðið 75 ára árið 2006, en lést árið 2004.
Sunnudagskvöld með Svövu voru sem fyrr segir fimm.

Sunnudaginn 15. janúar hélt Kristín Ástgeirsdóttir, forstöðukona Rannsóknarstofu í kynjafræðum, fyrirlestur undir yfirskriftinni Svava og stjórnmálin.

22. janúar var komið að Gerði Kristnýju Guðjónsdóttur rithöfundi en hennar erindi nefndist Svava og skáldskapurinn.

María Kristjánsdóttir fjallaði um Svövu og sviðslistirnar 29. janúar.

5. febrúar var röðin komin að Ármanni Jakobssyni bókmenntafræðingi en hann fjallaði um Svövu og samtímann.

Vigdís Finnbogadóttir hélt síðasta fyrirlesturinn í þessari röð 12. febrúar og ræddi um Skáldkonuna Svövu Jakobsdóttur.

Fyrirlestrarnir hófust kl. 18:00, að þeim loknum var boðið upp á léttan kvöldverð fyrir leiksýninguna og í lok hennar umræður.