Reykjavík Dialogue er viðburður helgaður baráttunni gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi sem fer fram bæði rafrænt og í Hörpu dagana 16.–18. ágúst 2021. Hér er annars vegar um að ræða alþjóðlega ráðstefnu og hins vegar heimsfund aðgerðasinna og kvennasamtaka. Ráðstefnan er skipulögð í samstarfi RIKK – Rannsóknastofnunar í jafnréttisfræðum og forsætisráðuneytisins. Alþjóðleg verkefnisstjórn með þátttöku fulltrúa frá ólíkum heimshlutum skipuleggur fundinn. Ríkisstjórn Íslands styrkir viðburðinn ásamt Reykjavíkurborg og Norrænu ráðherranefndinni.

Á ráðstefnu Reykjavík Dialogue, sem fer fram 16.–17. ágúst, verða ræddar leiðir til að tryggja hagsmuni brotaþola kynferðislegs og kynbundins ofbeldis og áreitni innan og utan réttarkerfisins. Þátttakendur í málstofum ráðstefnunnar munu líta bæði til hefðbundinna og óhefðbundinna nálgana er varða réttlæti í kynferðisbrotamálum. Meðal umfjöllunarefna eru uppbyggileg réttvísi, umbreytandi réttlæti, samfélagslegt réttlæti og arfleifð nýlendustefnu og kynþáttahyggju. Ráðstefnunni lýkur með pallborði þar sem helstu niðurstöður í umræðum málstofanna verða dregnar saman.

Heimsfundur kvennasamtaka og aðgerðarsinna sem berjast gegn kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi hefst eftir að ráðstefnunni lýkur á hádegi 17. ágúst og stendur til 18. ágúst. Þar verða lögð drög að yfirlýsingu um aðgerðir til að binda enda á ofbeldi gegn konum og stúlkum til næstu fimm ára.

Ráðstefnan og heimsfundurinn eru opin öllum sem skrá sig.

Nánari upplýsingar og dagskrá ráðstefnunnar má nálgast hér.

Upptökur frá ráðstefnunni eru aðgengilegar á Youtube.