Þorsteinn Vilhjálmsson er þriðji fyrirlesari fyrirlestraraðarinnar Hinsegin Ísland í alþjóðlegu samhengi sem er haldin í samstarfi RIKK – Rannsóknastofnunar í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands og Jafnréttisskólans (GRÓ-GEST) á vormisseri 2022. Fyrirlestur Þorsteins nefnist „„Replasera kvenfólkið með litlum sætum strákum“. Megas, hinseginleiki og friðhelgi listamannsins“ og er einnig á dagskrá Jafnréttisdaga en hann verður haldinn kl. 12.00 þann 17. febrúar í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands og sýndur í beinu streymi. 

Undir lok 9. áratugarins fór tónlistarmaðurinn Megas í nokkur ferðalög til Tælands þar sem hann komst í kynni við kynlífstúrisma með ungum tælenskum drengjum. Einn þeirra fluttist síðan um hríð til Íslands með Megasi. Þetta varð honum að yrkisefni á þremur af hans þekktustu og mest seldu plötum, Loftmynd (1987), Höfuðlausnir (1988) og Bláir draumar (1988). Þessi verk, og sérstaklega viðbrögðin við þeim, vekja upp margar spurningar, þar sem af íslenskum fjölmiðlum að dæma var líkt og truflandi hinsegin efnistök þessara verka hafi verið gagngert þögguð niður, á meðan Megas sjálfur hefur talað opinskátt um efnið í lögum og viðtölum. Í fyrirlestrinum verður gerð tilraun til að orðræðugreina ekki aðeins texta og tónlist Megasar á fyrrnefndum plötum heldur líka þögnina sem mætti þeim og ríkir um þær enn í dag. Samanburðar verður leitað í erlendri umræðu eftir #MeToo-byltinguna um þá friðhelgi sem listamenn njóta gagnvart opinberum siðferðislegum viðmiðum í kynferðismálum. Þá verður því velt upp hvað þögnin um verk Megasar þýði fyrir íslenska hinsegin sögu og sögu kynverundar hér á landi. 

Þorsteinn er doktorsnemi við Menntavísindasvið HÍ. Doktorsverkefni hans er á sviði hinsegin sögu og fjallar um skilyrta innlimun samkynhneigðra fyrirmyndarborgara inn í íslensku þjóðina á árunum 1990–2010. Þorsteinn starfaði áður sem sjálfstætt starfandi fræðimaður við ReykjavíkurAkademíuna og hefur gefið út nokkurn fjölda greina á sviði sögu kynverundar. Árið 2018 annaðist hann útgáfu dagbóka Ólafs Davíðssonar fræðimanns (Hundakæti: Dagbækur Ólafs Davíðssonar 1881–1884) og gaf árið 2016 út bók með þýðingum á grískum og latneskum ljóðum (Mundu, líkami: Óritskoðuð grísk og rómversk ljóð). 

Fundarstjóri er Ásta Kristín Benediktsdóttir, lektor í íslenskum samtímabókmenntum við Háskóla Íslands.

Frekari upplýsingar um fyrirlestraröðina má finna á heimasíðu RIKK – rikk.hi.is – og Facebook-síðu stofnunarinnar auk þess sem hægt er að skrá sig á tölvupóstlista RIKK hér.