Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands (RIKK) og Kvenréttindafélag Íslands standa fyrir málþingi um kvenfyrirlitningu, þöggun og tvískinnung í íslenskri stjórnmálaorðræðu. Þar verður m.a. fjallað um hæfni feðraveldisins til þess að laga sig að nýjum tímum, birtingarmyndir kynjafordóma, fötlunarfyrirlitningu og hatursorðræðu stjórnmálamanna. Spurt verður hvort feðraveldið sé að bregðast við #metoo-byltingunni og hvort enn sé litið á konur sem aðskotahlut í stjórnmálum.
Dagskráin fer fram í Veröld – húsi Vigdísar, miðvikudaginn 5. desember frá klukkan 11.30-13.15 
Málþingið hefst með röð fræðilegra ör-erinda. Að þeim loknum munu stjórnmálamenn fjalla um ofangreint ástand í pallborði.
Frummælendur verða fræðimennirnir: Irma Erlingsdóttir, dósent og forstöðumaður, Ragnheiður Kristjánsdóttir, dósent í sagnfræði, Erla Hulda Halldórsdóttir, dósent í kvenna- og kynjasögu, Ragnhildur Helgadóttir, forseti lagadeildar Háskólans í Reykjavík, Stefanía Óskarsdóttir, dósent í stjórnmálafræði, Henry Alexander Henrysson, aðjunkt við heimspeki- og sagnfræðideild, Silja Bára Ómarsdóttir, dósent í alþjóðasamskiptum, Þorgerður Þorvaldsdóttir, doktor í kynjafræði, Eyja Margrét Brynjarsdóttir, aðjunkt í heimspeki, Hafdís Erla Hafsteinsdóttir, sagnfræðingur og Dagný Kristjánsdóttir, prófessor í íslenskum nútímabókmenntum.

Í pallborðsumræðum taka þátt: Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, Þorsteinn Víglundsson, alþingmaður og fyrrverandi jafnréttisráðherra, Helga Vala Helgadóttir, og formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Halldóra Mogensen, formaður velferðarnefndar Alþingis, Silja Dögg Gunnarsdóttir, alþingismaður, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, alþingismaður og ritari Sjálfstæðisflokksins og Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir, formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar og baráttukona fyrir réttindum fatlaðs fólks.

Annadís Gréta Rúdólfsdóttir, dósent við deild menntunar og margbreytileika, stýrir pallborðsumræðum og fundarstjóri er Tatjana Latinovic, varaformaður Kvenréttindafélags Íslands.

Málþingið er öllum opið og aðgangur er ókeypis.

Viðburðurinn er á Facebook og málþinginu var einnig streymt í beinni útsendingu á Facebook-síðu RIKK og er aðgengilegt hér: