Líney Úlfarsdóttir

Líney Úlfarsdóttir, sálfræðingur, er fimmti fyrirlesari fyrirlestraraðar RIKK á haustmisseri 2019 og nefnist fyrirlestur hennar „Krosssaumur eða rauðir sokkar? Hugmyndasaga öldrunar á Íslandi“. Fyrirlesturinn er fluttur fimmtudaginn 7. nóvember, kl. 12:00-13:00, í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands. Hvernig „á“ að eldast, er til rétt leið og þá röng? Hvernig hefur þjónustu við aldraða tekist að aðlagast breyttum veruleika, aukinni fjölbreytni og fjölda aldraðra? Gerir þjónustan ráð fyrir öldruðum af öllum kynjum eða dugar að bjóða upp á krosssaum og útskurð til að sjá fyrir félagsþörf? Leitast verður við að varpa ljósi á þjónustu við aldraða eins og hún hefur verið og hvert við þurfum að stefna. Svokallað eftirlaunatímabil lengist og gerir það að verkum að við sem samfélag verðum að reikna með aukinni fjölbreytni, kröfum og draumum þessa hóps til að auka lífsgæði. Líney Úlfarsdóttir hefur allan starfsaldur sinn á Íslandi unnið hjá Reykjavíkurborg og lengst af í öldrunarmálum. Starfsvettvangur hefur verið einstaklingsvinna meðfram störfum heimahjúkrunar og félagslegarar heimaþjónustu auk ráðgjafar til starfsfólks og stofnana í öldrunargeiranum. Líney hefur einnig sinnt stundakennslu á sviði öldrunarsálfræði við Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn er fluttur á íslensku og er öllum opinn og aðgangur ókeypis. Viðburðurinn á Facebook! *** Hádegisfyrirlestraröð RIKK á haustmisseri 2019 er tileinkuð öldrun. Í fyrirlestraröðinni munu fyrirlesarar úr mismunandi greinum fjalla um viðfangsefnið út frá ólíkum sjónarhornum. Fyrirlestraröðin er haldin í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands.