Íslenskar konur og alþjóðastofnanir

17. apríl flutti Edda Jónsdóttir, sérfræðingur í mannréttindum, erindið Íslenskar konur og alþjóðastofnanir. Erindið byggði hún á lokaritgerð sinni um þátttöku Íslands í mannréttindatengdu starfi á vegum Sameinuðu þjóðanna, Evrópuráðsins og Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu. Í erindinu fjallaði Edda um þátttöku íslenskra kvenna og áherslur á jafnréttismál hjá þessum stofnunum á tímabilinu 1995-2006. Einnig fjallaði hún stuttlega um íslenskrar konur í friðargæslu.

Edda Jónsdóttir lauk nýlega meistaranámi í mannréttindafræðum við Bolognaháskóla á Ítalíu.