Á málþingi RIKK og menntamálaráðuneytisins í stofu 101 í Odda þann 14. desember kl. 12:00-13:00 voru kynntar niðurstöður rannsóknar um hlut karla og kvenna í sjónvarpi. Rannsóknin var gerð fyrr á þessu ári í samvinnu við nema í félags-, kynja- og fjölmiðlafræði við Háskóla Íslands og er í henni fjallað um karla og konur í fréttum, auglýsingum og sjónvarpsþáttum. Rannsóknin var gerð með sama hætti og hliðstæðar kannanir á hlut karla og kvenna í sjónvarpi sem gerðar voru árin 1999 og 2000. Einnig var fjallað um rannsókn sem fór fram á þessu ári á forsíðumyndum Fréttablaðsins og kyn og samfélagslega ábyrgð fjölmiðla.

Dagskrá:

Eyrún Magnúsdóttir fundarstjóri setur fundinn

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra flytur ávarp

Niðurstöður rannsóknarinnar kynntar í þrem liðum:
Auður Magndís Leiknisdóttir, B.A. í félags- og kynjafræði. Konur og karlar í auglýsingum: athugun á þætti karla og kvenna í auglýsingum á RÚV, Stöð 2 og Skjá einum.

Margrét Valdimarsdóttir, B.A.-nemi í félags- og fjölmiðlafræði. Karlar og konur í íslensku sjónvarpi: fréttir.

Elsa María Jakobsdóttir, B.A.-nemi í félags- og fjölmiðlafræði. Karlar og konur í sjónvarpsþáttum: athugun á birtingu kynjanna í sjónvarpsþáttum á RÚV, Stöð 2 og Skjá einum.

Kristín Loftsdóttir, mannfræðingur og Helga Björnsdóttir, doktorsnemi í mannfræði. Karla- og kvennarými: Kynjaðar ímyndir forsíðu Fréttablaðsins.

Þorgerður Þorvaldsdóttir, sagn- og kynjafræðingur. Ef kyn skiptir máli. Um kyn og samfélagslega ábyrgð fjölmiðla.

Pallborð með fulltrúum fjölmiðla: Sigmundur Ernir Rúnarsson, fréttastjóri NFS; Elín Hirst, fréttastjóri Sjónvarpsins; Magnús Ragnarsson, framkvæmdastjóri Skjásins, Svanborg Sigmarsdóttir, blaðamaður Fréttablaðsins og  Anna Kristín Jónsdóttir, fjölmiðlafræðingur.