Fimmtudaginn 26. apríl heldur Helga Þórey Björnsdóttir, doktor í mannfræði, hádegisfyrirlestur sem ber heitið „Hraustir menn. Sköpun kyngervis og sjálfsmyndar Íslensku friðargæslunni”. Fyrirlesturinn fer fram í Öskju, stofu 132, kl. 12:00-13:00.

Í erindinu, sem byggir á samnefndri doktorsrannsókn, er fjallað um menningarlegar og félagslegar hugmyndir um karlmennsku og kyngervi eins og þær birtust hjá hópi íslenskra karlmann sem unnu sem gæsluliðar hjá Íslensku friðargæslunni. Þessi hópur getur, í krafti kyngervis og félagslegrar stöðu sinnar, talist hluti af ríkjandi kynjanormi samfélagsins. Fjallað verður um með hvaða hætti slík staða hefur mótandi áhrif á hvernig einstaklingarnir skapa og birta kynjaða sjálfsmynd sína í tengslum við rýmislega og félagslega staðsetningu. Þá er sjónum einnig beint að Íslensku friðargæslunni sem opinberu rými og á hvern hátt hún birtist í opinberum orðræðum sem og staðsetningu hennar í alþjóðlegu samhengi. Bent er á að stofnun friðargæslunnar og val á verkefnum hafi í raun verið órækt vitni um vaxandi áhrif karllægrar hugmyndafræði innan samfélagsins.

Öll velkomin!