Hagtölur um stöðu kynja

Sigríður Vilhjálmsdóttir, þjóðfélagsfræðingur, flytur rabb fimmtudaginn 16. október sem hún nefnir Hagtölur um stöðu kynja. Það fer fram í stofu 201 í Odda kl. 12­13 og er öllum opið.

Kynntar verða helstu niðurstöður úr ritinu Konur og karlar 1997 sem Hagstofa Íslands gefur út. Það hefur að geyma ýmsar hagtölur sem varpa ljósi á stöðu kynjanna í íslensku samfélagi. Ritið spannar flest svið þjóðlífsins og má þar m.a. finna upplýsingar um mannfjölda, lífsvenjur og heilsu, menntun, atvinnu, tekjur og áhrifastöður.

Sigríður Vilhjálmsdóttir lauk BA-prófi úr almennum þjóðfélagsfræðum frá Háskóla Íslands árið 1974. Hún starfar nú á Hagstofu Íslands.