Fræðafjör til heiðurs Helgu Kress

Helga Kress

Fræðafjör er haldið til heiðurs Helgu Kress, prófessor emerita í almennri bókmenntafræði, sem fagnaði 80 ára afmæli í haust. Málþingið fer fram laugardaginn 30. nóvember 2019 og er skipulagt af RIKK – rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum, Árnastofnun og Bókmenntafræðistofnun.

Helga Kress á að baki langan akademískan feril og hefur verið áhrifamikil í feminískum fræðum og bókmenntafræðum á Íslandi. Á málþinginu munu vinir, samstarfsmenn og hliðstæðingar Helgu flytja snörp, fræðileg erindi til að heiðra arfleifð hennar. Ný heimasíða Helgu Kress á vef Bókmennta- og listfræðastofnunar verður einnig opnuð.

Dagskrá:

13:30-15:00

  • Guðrún Nordal: Um máttugar meyjar
  • Erla Hulda Halldórsdóttir: „Snjallari hjá mér munnlegar en skriflegar“. Um skrifandi konur og prýðilega heila
  • Auður Aðalsteinsdóttir: Draugar nýlendutímans. Skáldsagan Lifandilífslækur í ljósi vistfemínisma og eftirlendufræða
  • Marion Lerner: „LÝST ER EFTIR KONU!“ Ósýnilegi þýðandinn og fræðikonan
  • Ástráður Eysteinsson: Á ferð um Foldu með Helgu
  • Sigríður Þorgeirsdóttir: Völva í bókmenntafræði
  • Dagný Kristjánsdóttir: Gapriplablús
  • Úlfhildur Dagsdóttir: Hlæjandi meyjar. Lóaboratoríum

15:00-15:30: Kaffihlé

15:30-16:50

  • Soffía Auður Birgisdóttir: Far eftir hugsun. Um ljóðagerð Þóru Jónsdóttur
  • Hjalti Snær Ægisson: Um getnaðarhátíð Maríu
  • Ragnhildur Richter: Elsku góða Gunna mín
  • Benedikt Hjartarson: Í maga strútsins. Um grótesku og ritstuld í verkum tveggja til fimm evrópskra höfunda
  • Steinunn Sigurðardóttir: Valkyrja með karlmannsvit
  • Irma Erlingsdóttir: Um tregróf og aðrar byltingar
  • Sveinn Yngvi Egilsson opnar nýja heimasíðu Helgu Kress á vef Bókmennta- og listfræðastofnunar

Léttar veitingar

Málþingið er haldið í Öskju, 132