Forskot með fjölbreytileika

Föstudaginn 25. apríl stóðu jafnréttisnefnd Háskóla Íslands, jafnréttisnefnd Kennaraháskóla Íslands og Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands fyrir málþingi um jafnrétti í breiðum grundvelli, undir yfirskriftinni „Forskot með fjölbreytileika“.

Fjallað var um jafnréttismál frá ýmsum sjónarhornum, og var markmiðið að skapa samræðu milli fræðafólks í báðum skólum, nemenda, stjórnsýslu, og annarra sem áhuga hafa á jafnréttismálum. Það er stefna Háskóla Íslands að vera ávallt í fararbroddi í jafnréttismálum og liður í því er að skapa og viðhalda umræðu um kynja- og jafnréttismál með margvíslegum hætti.

Á málþinginu var fjallað um ýmsar þær spurningar sem máli skipta fyrir menntastofnanir sem vilja leggja áherslu á jafnréttismál í sínu starfi og skapa samfélag fjölbreytileikans innan sinna veggja. Þetta var gert með umræðum í vinnustofum, erindum og pallborðsumræðum.

Kristín Ingólfsdóttir rektor setti málþingið og síðan fluttu erindi þau Jón Atli Benediktsson, prófessor í verkfræði og þróunarstjóri HÍ, Ólafur Páll Jónsson, lektor í heimspeki og formaður jafnréttisnefndar KHÍ, og Rannveig Traustadóttir, prófessor og forstöðumaður rannsóknaseturs í fötlunarfræðum. Fundarstjóri var Brynhildur Flóvenz, lektor í lögfræði og formaður jafnréttisnefndar HÍ.

Fjórar vinnustofur, þar sem jafnréttismál voru rædd frá ýmsum hliðum, voru í boði. Málþinginu lauk með pallborðsumræðum, en í pallborði voru fulltrúar úr röðum fræðafólks, stjórnsýslu HÍ, nemenda og Jafnréttisstofu.

Málþingið var haldið í Öskju og hófst það kl. 13 og lauk með móttöku kl. 17.