Fléttur IV – Margar myndir ömmu

Út er komið fjórða hefti ritraðar RIKK, Fléttur IV – Margar myndir ömmu, og er það tileinkað ömmum og langömmum. Í greinunum eru sagðar sögur kvenna sem lifðu þann tíma þegar nútíminn hóf innreið sína á Íslandi. Fræðimenn af ólíkum sviðum, s.s. sagnfræði, guðfræði, félagsfræði, stjórnmálafræði og bókmenntafræði, setja lífshlaup formæðra sinna í samhengi við samfélagsgerðina sem, hvað sem borgaralegum réttindum leið, takmarkaði möguleika þeirra til þátttöku í opinberu lífi og um leið til sjálfstæðis og frelsis. Jafnframt er þáttur þeirra í að endurmóta ríkjandi hugmyndir um kvenleikann og samfélagslegt hlutverk sitt metinn og spurt hvaða tækifæri konur höfðu til þess að hafa áhrif í samfélaginu, bæði með starfi sínu inn á við, í þágu heimilis, en ekki síður út á við, til dæmis í gegnum félagasamtök og kvenfélög sem voru í hverri sveit. Greinarnar draga upp fjölbreyttar myndir af lífi kvenna á Íslandi um aldamótin 1900 og fram á miðja 20. öld með því að tefla saman kenningarlegri nálgun og persónulegri frásögn.

Árið 2015 markaði 100 ára árstíð kosningaréttar kvenna og af því tilefni stóð RIKK að hádegisfyrirlestraröð á vormisseri sem helguð var ömmum. Markmiðið með fyrirlestraröðinni var að segja sögur kvenna sem lifðu þann tíma þegar nútíminn hóf innreið sína á Íslandi. Tuttugasta öldin var öld baráttu fyrir borgaralegum réttindum, þar á meðal kvenréttindum en fyrsta bylgja femínisma skilaði atkvæðarétti til kvenna víða um heim á fyrstu áratugum 20. aldar.

Höfundar greina eru Irma Erlingsdóttir, Guðmundur Hálfdánarson, Dagný Kristjánsdóttir, Berglind Rós Magnúsdóttir, Sólveig Anna Bóasdóttir, Ármann Jakobsson, Erla Hulda Halldórsdóttir, Ingibjörg Sigurðardóttir, Sigrún Alba Sigurðardóttir, Annadís Gréta Rúdólfsdóttir, Silja Bára Ómarsdóttir og Súsanna Margrét Gestsdóttir og Guðni Th. Jóhannesson ritar formála.

Ritstjórar: Irma Erlingsdóttir, Ragnheiður Kristjánsdóttir, Sigrún Alba Sigurðardóttir og Sólveig Anna Bóasdóttir.

Fræðileg ritstjórn: Íris Ellenberger.

Útgefendur: RIKK og Háskólaútgáfan.

Útgáfa bókarinnar er styrkt af: Miðstöð íslenskra bókmennta, Framkvæmdanefnd um aldarafmæli kosningaréttar kvenna, Hugvísindastofnun og EDDA – öndvegissetur.