Helga Kress

Fimmtudaginn 4. desember flytur Helga Kress, prófessor emeritus í almennri bókmenntafræði, fyrirlesturinn „Eftir hans skipun. Um kynferðislegt ofbeldi sem meginorsök Natansmála og þöggun kvenraddarinnar í samfélagi og sögu.“ Fyrirlesturinn fer fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins kl. 12-13.

Fyrirlesturinn byggir á samnefndri grein í Sögu (I/2014) um kynferðislegt ofbeldi sem meginorsök morðanna á Illugastöðum í mars 1828, réttarhöldin og líflátsdóminn yfir þeim Agnesi Magnúsdóttur og Sigríði Guðmundsdóttur, vitnisburð frumheimilda, þ.e. málskjalanna, sem sýna að ekki hefur verið á þær hlustað, að viðbættu því hvernig örlög þeirra hafa verið rómantíseruð, túlkuð og nýtt í sagnaþáttum og skáldskap, m.a. nýrri skáldsögu Hönnuh Kent, Náðarstund.

Greinina má nálgast rafrænt á Academia.edu.

Fyrirlesturinn er haldinn í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands.

Viðburðurinn er á Facebook.