Að skrifa konur inn í þjóðarsöguna

Gunnar Karlsson prófessor í sagnfræði flytur hádegisfyrirlestur á vegum Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum fimmtudaginn 21. sept. kl. 12.15-13.15 í Norræna húsinu. Ber fyrirlesturinn heitið Að skrifa konur inn í þjóðarsöguna.

Yfirlitsrit um sögu hafa jafnan speglað valdastöðu karla í samfélögum fortíðar og því fjallað margfalt meira um karlmenn en konur. Þetta á jafnt við um svokallaða mannkynssögu sem Íslandssögu og yfirlit fyrir almenning sem námsbækur. Á tímum jafnréttiskröfu er þetta alvarlegt vandamál fyrir fræðigreinina sagnfræði og námsgreinina sögu, og ætlar fyrirlesari að ræða um hugsanlegar leiðir til að bæta úr því.