8. mars er alþjóðlegur baráttudagur kvenna. Þá verður haldið málþing á vegum Úkraínuverkefnis Háskóla Íslands í samstarfi við RIKK – Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum og Vigdísarstofnun. Á dagskrá málþingsins verða bæði erindi og umræður um kvennahreyfingar og -sögu á Íslandi, í Úkraínu og Kósovó. Málþingið fer fram á ensku og verður haldið í Auðarsal í Veröld – húsi Vigdísar, frá kl. 18.00 til 20.00.

Erindi flytja:
Ragnheiður Kristjánsdóttir, prófessor í sagnfræði við HÍ.
Iryna Hordiienko, sjónvarpsframleiðandi frá Kyiv.
Linda Gusia, lektor við félagsfræðideild háskólans í Pristína.

Pallborðsumræður með þáttöku Ragnheiðar Krisjánsdóttur, Iriynu Hordiienko, Lindu Gusia og Oksönu Shabatura.

Tónlistaratriði: Asya Leskova syngur

Fundarstjóri: Helga Brekkan verkefnisstjóri Úkraínuverkefnis HÍ

Á eftir verður boðið upp á léttar veitingar. Aðgangur ókeypis og öll velkomin!