RIKK hefur birt úttekt á Bjarkarhlíð – miðstöð fyrir þolendur ofbeldis sem er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar, félagsmálaráðuneytisins, dómsmálaráðuneytisins, Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, Samtaka um kvennaathvarf, Stígamóta, Drekaslóðar, Mannréttindaskrifstofu Íslands og Kvennaráðgjafarinnar. Miðstöðin opnaði í byrjun mars 2017 og var til ársloka 2018 skilgreind sem tilraunaverkefni. Að þeim tíma liðnum var ákveðið að festa starfsemina í sessi til framtíðar. Í úttektinni er gerð grein fyrir helstu styrkleikum og veikleikum verkefnisins og gefin innsýn í hvernig til hefur tekist ásamt því að skoða mögulegar leiðir til umbóta. Úttektin er unnin af RIKK – Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum sem hluti af samstarfssamningi RIKK og Reykjavíkurborgar.
Matið byggir á fyrirliggjandi gögnum frá Bjarkarhlíð, megindlegum og eigindlegum, um starfsemina almennt, þjónustuna, þjónustuþegahópinn og viðhorf þjónustuþega auk þess sem nýrra gagna var aflað með viðtölum, samráðshópum og tölvupóstum. Í matsteyminu voru Elín Björk Jóhannsdóttir, verkefnisstjóri hjá RIKK, sem hafði yfirumsjón með úttektinni og Kristín A. Hjálmarsdóttir, sjálfstætt starfandi fræðimaður, sem sá um framkvæmd úttektarinnar fyrir hönd RIKK.