Föstudaginn 13. febrúar flytur Súsanna Margrét Gestsdóttir, sagnfræðingur og aðjúnkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, fyrirlestur um ömmu sína og nöfnu, Súsönnu Margréti Gunnarsdóttur frá Norðurfirði á Ströndum, 1926-2002, í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins, kl. 12-13.
Nafn Súsönnu Margrétar Gunnarsdóttur er hvorki að finna í skrám yfir brautskráða stúdenta né í félagatali róttækra kvennahreyfinga en engu að síður hefur tvennt runnið upp fyrir fyrirlesara á síðustu árum: Annað er það hversu skýrt breytingar á aðstæðum kvenna á tuttugustu öld kristallast í lífshlaupi hennar og hitt er hversu sterkur þráður er frá henni og til eigin viðfangsefna fyrirlesara sem er kennari, sagnfræðingur og doktorsnemi við Háskólann í Amsterdam. Mikil stoð er í því að þessi amma hefur verið haldin ákafri tilhneigingu til heimildasöfnunar og ríkri skrásetningarþörf og því fá hennar eigin orð oft að hljóma í fyrirlestrinum, auk þess sem margar myndir úr ljósmyndasafni hennar prýða hann.
Spáð verður í ömmuna góðu inni á heimilinu en ekki síður í ömmu sem brautryðjanda í atvinnulífi kvenna – þáttur hennar í stofnun Handprjónasambands Íslands er nokkuð sem fyrirlesari vissi sannarlega af en áttaði sig ekki á umfangi þess hlutverks hennar fyrr en við undirbúning fyrirlestursins.
Fyrirlesturinn er hluti af fyrirlestraröðinni „Margar myndir ömmu“ sem RIKK heldur í samstarfi við Þjóðminjasafnið og styrkt er af framkvæmdanefnd um 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna.
Viðburðurinn er öllum opinn og er á Facebook.