Rannveig Sigurvinsdóttir, nýdoktor við sálfræðisvið Háskólans í Reykjavík, heldur annan fyrirlestur haustmisseris í fyrirlestraröð RIKK fimmtudaginn 22. september, í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands, kl. 12-13. Fyrirlestur Rannveigar nefnist „Svona kemur ekki fyrir konur eins og mig“. Þolendur heimilisofbeldis, öryggi og úrræði.
Fyrirlestraröðin fæst að þessu sinni við kynbundið ofbeldi og áhrif kynjakerfisins á heilsufar en RIKK er með nokkur verkefni í gangi þar sem sjónum er beint að kynbundnu ofbeldi. Rannveig er í rannsóknarhópi sem stendur að rannsókn á heimilisofbeldismálum og er fyrirlesturinn afrakstur þemagreiningar á viðtölum við þolendur.
Rannveig Sigurvinsdóttir lauk doktorsprófi í samfélagslegri sálfræði frá University of Illinois í Chicago árið 2016 og MA-prófi frá sama háskóla árið 2013. Hún lauk BA-prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2011. Rannsóknarsvið hennar er heimilisofbeldi, kynferðisofbeldi, félagslegir þættir sem hafa áhrif á ofbeldi og inngrip gegn því.
Heimilisofbeldi er alvarlegt og þrálátt vandamál sem setur þolendur stöðugt í hættu. Mikilvægt er að bregðast við þessum samfélagsvanda og skilja hvaða áhrif inngrip gegn honum hafa. Kynntar verða niðurstöður viðtalsrannsóknar meðal þolenda heimilisofbeldis sem tóku þátt í átaksverkefni Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Reykjavíkurborgar árið 2015. Tilgangur rannsóknarinnar var að meta áhrif átaksverkefnisins á öryggi þolenda, meðal annars í gegnum stuðning, styrk og úrræði.
Fyrirlesturinn er fluttur á íslensku, er öllum opinn og aðgangur er ókeypis.
Hádegisfyrirlestraröð RIKK á haustmisseri 2016 er haldin í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands.
Hægt er að horfa á upptöku af fyrirlestrinum hér: