Fimmtudaginn 13. apríl standa RIKK – Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum og alþjóðlegi Jafnréttisskólinn (GRÓ GEST) við Háskóla Íslands fyrir málstofunni Decolonisation of Higher Education. Perspectives from Postcolonial Contexts. Þar munu þátttakendur frá háskólum í Jamaíka, Úganda og Líbanon ræða háskólamenntun frá sjónarhorni síðnýlenda. Málstofan er hluti af rannsóknaverkefni um afnýlenduvæðingu háskólamenntunar í norrænu samhengi sem er leitt af Giti Chandra, sérfræðingi hjá RIKK og GEST. Þátttakendur málstofunnar eru Dalea Bean, Jennifer Skulte-Ouaiss, Josephine Akhikire, Sarah Ssali og Giti Chandra. Gestirnir fjórir eru frá samstarfsháskólum GRÓ GEST og koma hingað með stuðningi Erasmus+ styrkjakerfisins.

Í málstofunni munu þátttakendur ræða málefni afnýlenduvæðingar út frá sjónarhorni heimalanda sinna sem fyrrum evrópskra nýlenda. Einnig munu þau ræða háskólamenntun í því sem oft er nefnt „hnattræna suðrið“, tengsl þess við „hnattræna norðrið“ og þá sérstaklega áhrif þeirra tengsla á kennslufræði, rannsóknir og kennsluskrár. Málstofan fer fram milli 15.00–17.00 í stofu 101 á Háskólatorgi.