RIKK – Rannsóknarstofnun í jafnréttisfræðum – stóð á vormisseri 2015 fyrir hádegisfyrirlestraröð sem helguð var ömmum í tilefni 100 ára kosningaréttar kvenna á Íslandi standa. Markmiðið var að segja sögur kvenna sem lifðu þann tíma þegar nútíminn hóf innreið sína á Íslandi, í lok 19. aldar og á fyrri hluta 20. aldar, og varpa ljósi á framlag þeirra, stöðu og aðstæður. Tuttugasta öldin var öld baráttu fyrir borgaralegum réttindum, þar á meðal kvenréttindum en fyrsta bylgja femínisma skilaði atkvæðarétti til kvenna víða um heim á fyrstu áratugum 20. aldar.
Í fyrirlestraröðinni var fjallað um sögu, hugmyndaheim og aðstæður þessara kvenna og efnið sett í kenningalegt en jafnframt persónulegt samhengi.
Fræðimenn úr ýmsum greinum tengdu rannsóknarefni sín við ömmur/langömmur sínar og/eða konur sem tengdust þeim með einum eða öðrum hætti. Fjallað var um breiðan hóp kvenna með ólíka búsetu, menntun og menntunarmöguleika, af ólíkri stétt; þekktar sem óþekk(t)ar. Nánari upplýsingar um fyrirlestraröðina er að finna á vefsíðu RIKK: https://rikk.hi.is/margar-myndir-ommu-fyrirlestrarod-rikk-a-vormisseri-2015/.
Skemmst er frá því að segja að fyrirlestraröðin vakti mikla athygli og segja má að aðsókn á hana sé dæmalaus. Svo fór að fyrirlestrarnir voru fluttir í stærstu salarkynni Háskóla Íslands og dugði varla til. Af þessu spratt sú hugmynd að flytja fyrirlestrana úti á landi, til að fleiri mættu njóta þeirra, í samstarfi við Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands og á Vestfjörðum í samstarfi við Prófessorsembætti Jóns Sigurðssonar og á Akureyri í samstarfi við Hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri. Einnig var ákveðið að leita til heimamanna til að taka þátt í viðburðunum.
Nú í september verða því viðburðir með fyrirlestrum á eftirfarandi stöðum:
- Rannsóknarsetur HÍ, Skagaströnd, 12. og 19. september
- Rannsóknarsetur HÍ, Vestfjörðum og prófessorsstaða Jóns Sigurðssonar, Ísafirði, 19. september
- Rannsóknarsetur HÍ, Hornafirði, 26. september
- Háskólinn á Akureyri, 26. september
Fyrsti fyrirlesturinn er á Skagaströnd 12. september en þá flytur Annadís Greta Rúdólfsdóttir, lektor í aðferðafræði rannsókna við Háskóla Íslands, fyrirlestur sinn „Óþekk(t)ar ömmur“ í Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra á Skagaströnd, kl. 14-15. Sjá nánar: https://rikk.hi.is/othekktar-ommur-a-faraldsfaeti/.