Kolbeinn Hólmar Stefánsson, sérfræðingur við Hagstofu Íslands, er þriðji fyrirlesari fyrirlestraraðar RIKK á haustmisseri 2019 og nefnist fyrirlestur hans „Tekjur á efri árum: Samspil tekna, réttinda og ólíks lífshlaups kvenna og karla“. Fyrirlesturinn er fluttur fimmtudaginn 17. október, kl. 12:00-13:00, í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands.
Í erindinu fjallar Kolbeinn Stefánsson um lífskjör á efri
árum með sérstakri áherslu á kynbundinn mun á lífeyristekjum. Hann fjallar um
þá þætti sem hafa áhrif á niðurstöðuna, svo sem kynhlutverk og kynbundna
verkskiptingu, kynbundinn launamun og hærri tíðni örorku á meðal kvenna en
karla. Kolbeinn byggir umfjöllun sína á gögnum frá Hagstofu Íslands,
Tryggingastofnun ríkisins og af vefnum Tekjusagan.is. Gögnin benda til þess að
lífeyriskerfið framlengi kynbundinn launamun inn á efri árin en að skerðingar
lífeyris almannatrygginga dragi þó lítillega úr kynbundnum muni tekna eldri borgara.
Kolbeinn hefur starfað við rannsóknir á sviði lífskjara-
og velferðarmála frá 2001. Hann lauk doktorsnámi í félagsfræði frá
Oxfordháskóla árið 2013. Síðan þá hefur hann starfað hjá Hagstofu Íslands og
komið þar að ýmsum verkefnum, svo sem félagsvísum og mælingum á hagsæld og
lífsgæðum. Samhliða störfum sínum á Hagstofunni hefur hann verið virkur í
rannsóknum og kennslu. Fyrr á þessu ári gaf hann út skýrslu um lífskjör og
fátækt barna á Íslandi sem var unnin fyrir Velferðarvaktina og nýverið gaf
Öryrkjabandalag Íslands út skýrslu hans um fjöldaþróun örorkulífeyrisþega.
Fyrirlesturinn
er fluttur á íslensku og er öllum opinn og aðgangur ókeypis.
Viðburðurinn á Facebook!
***
Hádegisfyrirlestraröð
RIKK á haustmisseri 2019 er tileinkuð öldrun. Í fyrirlestraröðinni munu fyrirlesarar
úr mismunandi greinum fjalla um viðfangsefnið út frá ólíkum sjónarhornum.
Fyrirlestraröðin
er haldin í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands.