Fimmtudaginn 3. desember verður efnt til rafrænnar málstofu í tilefni af útkomu bókarinnar The Routledge Handbook on the Politics of the #MeToo Movement í ritstjórn Giti Chandra og Irmu Erlingsdóttur. Á málstofunni, sem fer fram milli kl. 16.00 og 17.30, munu sex kaflahöfundar auk ritstjóra fjalla um efni bókarinnar, rýna í styrk- og veikleika hreyfingarinnar í þverþjóðlegu samhengi og setja fram hugmyndir um hvernig viðhalda megi slagkrafti hennar. Frummælendur verða þau Angela Davis, Purna Sen, Marai Larassi, Freyja Haraldsdóttir, Jeff Hearn, Magdalena Grabowska og Cynthia Enloe.
#MeToo-hreyfingin hefur þegar markað þáttaskil. Nýnæmi hennar felst ekki aðeins í breiðari þátttöku og samstöðu í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi, kynferðislegri áreitni og hatursorðræðu en áður hefur þekkst. Hún hefur einnig leitt til alþjóðlegrar viðurkenninngar á útbreiðslu vandans og pólitískrar viðhorfsbreytingar, þar sem áhersla er lögð á kerfislægt misrétti. Í fyrirlestri sínum á alþjóðaráðstefnu í Hörpu um #MeToo-hreyfinguna í september 2019 notaði Angela Davis orðið „heimsfaraldur“ þrisvar sinnum til að lýsa útbreiðslu og áhrifum kynferðislegs ofbeldis sem alþjóðlegrar ógnar við velferð og lífi kvenna og annarra einstaklinga sem tilheyra viðkvæmum hópum. Þetta var aðeins hálfu ári áður en hættustigi var lýst yfir vegna COVID-19. Hröð útbreiðsla veirunnar og erfiðleikarnir við að vinna bug á henni hafa á margan hátt dýpkað skilning almennings á kerfislægum ógnum og misrétti. Hins vegar er sú hætta einnig fyrir hendi að faraldurinn leiði til bakslags í baráttunni gegn kynferðislegu ofbeldi og kynjamismunun, enda hefur heimilisofbeldi aukist til muna eftir hann hófst. Útgáfu bókarinnar styrkti Jafnréttissjóður, en auk þess standa RIKK, Jafnréttisskólinn og rannsóknasetrið EDDA við Háskóla Íslands að útgáfunni.
Skráning á málstofuna fer fram hér.