Tryggvi R. Jónsson, MA í mannauðsstjórnun, Albert Arnarson, MA í vinnu- og skipulagssálfræði og Haukur Freyr Gylfason, MA í sálfræði héldu erindi á vegum RIKK fimmtudaginn 17. janúar kl. 12:00 í Háskólabíói, sal 4.
Í erindinu kynntu þeir rannsókn sína um launamun kynjanna.
Markmið rannsóknarinnar var að kanna áhrif nokkurra þátta á launamun kynjanna sem ekki hafa verið kannaðir áður. Einn slíkur þáttur er launavæntingar umsækjenda fyrir ákveðið starf. Væntingar og þar af leiðandi umbeðin laun fyrir starfið geta haft áhrif á þau laun sem viðkomandi er ráðinn á. Einnig voru skoðaðir félagssálfræðilegir þættir, svo sem félagslegur samanburður (social comparison). Reynt var að kanna hvort félagsleg viðmið hafi áhrif á mat kynjanna á launakröfur þegar um er að ræða annars vegar kynjaskipta hópa eða hins vegar blandaða hópa. Kannað var hvort og þá með hvaða hætti karlar og konur verða fyrir áhrifum af öðru fólki þegar rætt er um laun og launakröfur fyrir sama starf.
Með þessu er leitast við að auka skilning á launamun kynjanna.
Nauðsynlegt er að skoða sem flesta áhrifaþætti og með því að skoða væntingar til launa er talið að það verði til aukinn skilningur á þeim óútskýrða launamun sem er milli kynjanna á íslenskum vinnumarkaði. Með þessu er ekki verið að draga úr gildi annarra skýringarþátta sem áður hafa verið rannsakaðir heldur verið að bæta við nýjum athugunum til að bæta við fyrri skilning á kynjabundnum launamun.