Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum boðar til umræðufundar um tillögur kvennahreyfingarinnar til stjórnarskrárnefndar vegna fyrirhugaðra breytinga á stjórnarskrá íslenska lýðveldisins. Fundurinn verður haldinn föstudaginn 21. apríl klukkan 12.15 í stofu 132 í Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands. Þar munu Elsa S. Þorkelsdóttir lögfræðingur og Drífa Snædal, fræðslu- og framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf, fjalla um tillögur kvennahreyfingarinnar og verður í kjölfarið opnað fyrir umræður.
Tillögurnar eru í þremur megin liðum:
Að stjórnarskráin kveði á um að ná skuli sem jöfnustu hlutfalli karla og kvenna á Alþingi.
Að stjórnvöld séu skuldbundin til aðgerða til að jafna stöðu karla og kvenna.
Að allir skuli njóta mannhelgi og verndar gegn ofbeldi á opinberum vettvangi sem og í einkalífi.
Tillögurnar í heild sinni og meðfylgjandi greinagerð má nálgast á vef UNIFEM. Þar má einnig skrifa undir stuðningsyfirlýsingu við tillögurnar.