Berglind Hólm Ragnarsdóttir er annar fyrirlesari í hádegisfyrirlestraröð RIKK – Rannsóknastofnunar í jafnréttisfræðum á vormisseri 2025 en röðin er tileinkuð stéttarhugtakinu, stéttaskiptingu og samtvinnun þar sem stétt er lykilbreyta. Erindið ber titilinn: „Birtingarmyndir stéttaskiptingar meðal kvenna á Íslandi: Líðan, félagsleg tengsl og samræming fjölskyldu-og atvinnulífs“ og verður haldið á milli kl. 12 og 13 fimmtudaginn 30. janúar í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands.
Í erindinu fjallar Berglind um niðurstöður rannsóknarinnar „Verkakonur, vellíðan og velferðarkerfið“, sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á veruleika ólíkra hópa kvenna á Íslandi. Skortur er á rannsóknum á stéttaskiptingu meðal kvenna en mikilvægt er að líta ekki á konur sem einsleitan hóp þegar fjallað eru um stöðu og lífskjör þeirra í samfélaginu.
Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að ójöfnuður meðal kvenna á Íslandi á sér ýmsar birtingamyndir. Láglaunakonur eru líklegri til að búa á heimilum þar sem erfitt er að ná endum saman, þær eru líklegri til að vera á almennum leigumarkaði og upplifa að fjárskortur komi í veg fyrir að þær geti greitt fyrir ýmsa grunnþætti fyrir sig og börnin sín. Þá eru konur í verkastétt líklegri til að upplifa kvíða og þunglyndi í tengslum við álagið sem fylgir því að samræma fjölskyldu-og atvinnulíf.
Berglind Hólm Ragnarsdóttir er lektor við félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri þar sem hún sérhæfir sig í rannsóknum á félagslegum ójöfnuði, kynjajafnrétti og samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs. Berglind lauk doktorsgráðu í félagsfræði frá Háskóla New York borgar (City University of New York) árið 2019.
Frekari upplýsingar um fyrirlestraröðina má finna á heimasíðu RIKK – rikk.hi.is – og Facebook-síðu stofnunarinnar auk þess sem hægt er að skrá sig á tölvupóstlista RIKK hér. Upptaka af fyrirlestrinum verður gerð aðgengileg á heimasíðu RIKK og Youtube. Fyrirlestraröðin er haldin í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands.