Miðvikudaginn 21. febrúar var haldinn morgunverðarfundur á Grand hótel. Til umræðu var kynbundið ofbeldi. Erindi fluttu Guðrún Jónsdóttir Stígamótum, Ása Ólafsdóttir lögfræðingur og Kristín Ástgeirsdóttir forstöðumaður RIKK. Á eftir voru pallborðsumræður með fulltrúum stjórnmálaflokkanna. Fundarstjóri var Guðrún Agnarsdóttir læknir.

Að fundinum stóðu: Femínistafélag Íslands, Kvennaathvarfið, Kvenfélagasamband Íslands, Kvenréttindafélag Íslands, Mannréttindaskrifstofa Íslands, Neyðarmóttaka vegna nauðgana, Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við HÍ, Samtök kvenna af erlendum uppruna, Stígamót og UNIFEM á Íslandi.

Framundan eru kosningar til Alþingis. Hver er stefna stjórnmálaflokkanna hvað varðar kynbundið ofbeldi og aðgerðir gegn því? Á að samþykkja nýjan kafla um kynferðisofbeldi eins og hann liggur fyrir Alþingi en samkvæmt honum er kaup og sala á vændi löglegt? Hvað líður framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar gegn kynferðisofbeldi? Hvað er hægt að gera til að bæta réttarkerfið? Hvernig á að bæta rannsókn kynferðisbrotamála þannig að þau skili sér inn í réttarkerfið? Hvernig má styrkja stöðu brotaþola enn betur?  Á að hækka lágmarksrefsingar í kynferðisbrotamálum? Hvað um fyrirbyggjandi aðgerðir?

Ekki þarf að rifja upp hve miklar og skelfilegar upplýsingar hafa komið fram undanfarin ár um kynferðislegt ofbeldi, ekki síst gegn börnum. Hvar liggja ræturnar, hvar erum við stödd og hvernig á að bregðast við til að byrgja brunninn? Allt þetta var til umræðu á fundinum sem var sá fyrsti í röð funda þar sem rætt var við stjórnmálaflokkana um málefni sem snerta jafnrétti kynjanna og öryggi kvenna og barna.