Föstudaginn 28. febrúar 2014 efnir RIKK – Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands til málþings í samvinnu við Jafnréttisstofu um reynslu og þátttöku kvenna af sveitarstjórnum. Málþingið ber yfirskriftina „Að eiga orðið“ og fer fram kl. 14.00–16.00 í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands.

Málþingið er haldið í tilefni af sveitarstjórnarkosningunum í maí 2014. Stjórnmálaþátttaka kvenna á vettvangi sveitarstjórna hefur aukist á undanförum árum, en í byrjun 21. aldarinnar var hlutur kvenna í sveitarstjórnum 31,5% og eftir síðustu kosningar eru konur um 40% kjörinna sveitarstjórnafulltrúa. Á málþinginu verður fjallað um sögulega þátttöku kvenna í sveitarstjórnum og greint frá niðurstöðum nýrrar rannsóknar um viðhorf og reynslu kvenna af þátttöku í sveitarstjórnum. Þá verður rætt um ólíkar framboðsaðferðir stjórnmálaflokka og velt upp þeirri spurningu hvort þær hafi haft áhrif á gengi kvenna á listum þeirra flokka sem bjóða fram til sveitarstjórnarkosninga nú í vor. Að loknum erindum taka við pallborðsumræður með þátttöku kvenna sem bjóða sig nú fram til setu í sveitarstjórnum..

Dagskrá:

Kristín Ástgeirsdóttir, sagnfræðingur og framkvæmdastýra Jafnréttisstofu. Opnun: Stjórnmálaþátttaka kvenna á vettvangi sveitarstjórna

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra. Ávarp: Plássfreka kynið

Auður Styrkársdóttir, stjórnmálafræðingur og forstöðukona Kvennasögusafns Íslands: „Með æfðari hagsýni, nærgætni og næmari tilfinningum.“ Kosningarétturinn 1882 og framlag kvenna til íslenskra stjórnmála

Bergljót Þrastardóttir, sérfræðingur hjá Jafnréttisstofu: „Ég veit að þetta eru kynjaveggir“. Viðhorf og reynsla kvenna í pólitísku starfi á sveitarstjórnarstiginu

Rósa G. Erlingsdóttir, stjórnmálafræðingur: Kynjaskekkja í íslenskum stjórnmálum – skipta framboðsaðferðir máli?

Pallborðsumræður. Þátttakendur: Áslaug Friðriksdóttir, Ásta Helgadóttir, Elsa Hrafnhildur Yeoman, Guðrún Bryndís Karlsdóttir, Kristín Soffía Jónsdóttir og Sóley Tómasdóttir.