Kvennabarátta og kristin trú

Í tilefni af útgáfu bókarinnar Kvennabarátta og kristin trú, sem Arnfríður Guðmundsdóttir og Kristín Ástgeirsdóttir ritstýrðu, verður haldin útgáfuráðstefna, miðvikudaginn 29. apríl 2009, kl. 13 – 16 í stofu 101 í Odda, Háskóla Íslands.

Dagskrá

Kristín Ástgeirsdóttir sagnfræðingur : Setning
– Dr. Arnfríður Guðmundsdóttir guðfræðingur: „Almennur prestsdómur – líka fyrir konur?“
Nína Leósdóttir guðfræðingur: „Viltu N. dóttir taka þennan mann þér til húsbónda…?’’Um hjónavígsluritúal og hjónavígslusálma 1718-1901
Erla Hulda Halldórsdóttir sagnfræðingur: „Orðræða hjónabandsins og mótun kyngervis“.

Kaffihlé.

Kristín Ástgeirsdóttir sagnfræðingur: „Fram og syng þú leiðarlag, landsins konum hraustum.“ Kvenréttindabaráttan í skrifum íslenskra kvenna og karla um aldamótin 1900.
– Dr. Sigríður Dúna Kristsmundsdóttir: Með Ólafíu á aðra hönd…Frumkvöðullinn og baráttukonan Ólafía Jóhannsdóttir.
– Dr. Dagný Kristjánsdóttir bókmenntafræðingur: Réttur kærleikans.Ástin og trúin í verkum Kristínar Sigfúsdóttur.

Málstofustjóri: Dr. Auður Styrkársdóttir, forstöðumaður Kvennasögusafns Íslands.

Kristnihátíðarsjóður styrkti verkefnið.