Karlmannaritið Njála

Þann 26. apríl flytur Ármann Jakobsson, bókmenntafræðingur, erindið Karlmannaritið Njála.

Í erindi sínu mun Ármann fjalla um grein sem hann ritaði um Njálu í Skírni í fyrr, viðtökur hennar og um það sem hann lét ósagt í greininni. Þar var Njála skoðuð út frá hugmyndum um kynferði og því var haldið fram að hugmyndir sem þar birtust um kynferði væru alls ekki íhaldssamar eða að þar væri á ferð kvenhatur, þvert á móti mætti greina í Njálssögu róttæka afbyggingu á ýmsum hugmyndum um kynferði.

Í þessu erindi ræðir hann sérstaklega þann hluta greinarinnar sem mest viðbrögð hefur fengið, þ.e. vináttu Gunnars og Njáls og hvernig beri að túlka viðbrögð.