RIKK – Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum tekur þátt í evrópskum og norrænum rannsóknaverkefnum, stendur að og tekur þátt í fjölda rannsóknarverkefna á sviði kvenna- og kynjafræða. RIKK birtir niðurstöður rannsókna á fræðasviðinu með bókaútgáfu auk þess sem afrakstur fyrri rannsóknaverkefna má sjá í skýrslum sem stofnunin hefur staðið að.
Afnýlenduvæðing háskóla felst í að greina námsefni og aðferðafræði kennslu með það fyrir augum að skoða áhrif undirliggjandi hugmyndafræði nýlendu- og heimsvaldastefnu. Slík áhrif hafa oft í för með sér þöggun og afbakanir sem viðhalda samfélagslegum ójöfnuði, veikja lýðræði og draga úr jafnrétti. Háskóli Íslands (HÍ) hefur, á sama hátt og aðrar norrænar háskólastofnanir, að markmiði að skapa frjóan jarðveg fyrir rannsóknir og nýsköpun þar sem hlúð er að margbreytileika og jafnrétti á öllum stigum starfseminnar. Hins vegar eiga HÍ og aðrir norrænir háskólar enn eftir að staðsetja sig gagnvart þessum viðmiðum. Afnýlenduvæðing háskólamenntunar í norrænu samhengi er umbótamiðuð rannsókn (e. participatory action research) í þeirri merkingu að rannsakandi og þátttakendur taka þátt í breytingaferli eftir því sem rannsókninni vindur fram. Framkvæmd verður eigindleg innihaldsgreining á námsefni og námskeiðslýsingum og tekin verða djúpviðtöl við nemendur og kennara við sjö deildir á þremur fræðasviðum HÍ. Í kjölfarið fer fram samráðsferli, sem er hluti af rannsókninni, um leiðir til að afnýlenduvæða kennslu á háskólastigi og það hvernig styðja megi æðri menntastofnanir almennt í þeirri viðleitni. Um er að ræða fyrstu rannsókn á afnýlenduvæðingu kennslu og námsefnis við norrænan háskóla.
Til að nálgast nánari upplýsingar um verkefnið er hægt að hafa samband við Giti Chandra, gc@hi.is
ProGender
Evrópskt samstarfsverkefni um kynbundin áhrif COVID-19 kreppunnar
ProGender er rafrænt samstarfsverkefni um kynbundin áhrif COVID-19 kreppunnar. Hér má sjá upplýsingar um viðburði í verkefninu sem haldnir eru í samstarfi við RIKK:
Gestafyrirlestur: „Chaos ruined the children’s sleep, diet and behaviour.“ Gendered discourses on family life in pandemic times
Pallborðsumræður: How essential is health and care work during COVID-19? A discussion on Gender, Care and Labour
Gestafyrirlestur: Exacerbating an Already Dangerous Problem. Gender-Based Violence in COVID-Times
Pallborðsumræður: Gender-Based Violence during COVID-19. Challenges and Responses
Pallborðsumræður: The Impact of COVID-19 on Women Scientists
Pallborðsumræður: Migration and Gender during the Pandemic
Pallborðsumræður: Local Government in the Pandemic. Does Gender Make the Difference?
Námskeið: Between Two Pandemics. Increasing Gender-Based Violence during COVID and Beyond
Gestafyrirlestur: Sexual Violence. Prevention Work and Services for Survivors in Covid Times
Lykilfyrirlestur á lokaráðstefnu verkefnisins: Gender Equality in the times of COVID
GE-HEI – Gender equality in higher education institutions
Samstarf milli Íslands og Portúgal
GE-HEI-verkefnið miðar að því að þróa nýja þekkingu, verkfæri og aðferðir til að tryggja að tillit sé tekið til kynjasjónarmiða í menntunarstofnunum á háskólastigi í Portúgal.
MARISSA
Evrópskt samstarfsverkefni um heimilisofbeldi og áfengis- og vímuefnavanda
RIKK er þátttakandi í MARISSA-verkefninu þar sem sjónum er beint að hinum tvíþætta vanda að verða fyrir ofbeldi í nánu sambandi og glíma einnig við áfengis- og vímuefnavanda. Í hverju landi taka tvær stofnanir þátt, ein háskólastofnun og ein grasrótarsamtök. RIKK og Rótin eru íslensku þátttakendurnir í verkefninu en auk Íslands eru Eistland og Grikkland aðilar að verkefninu. Áhersla verkefnisins er að auka samstarf milli þjónustuaðila sem vinna með konum sem verða fyrir heimilisofbeldi annars vegar og þjónustuaðila sem vinna með konum með áfengis- og vímuefnavanda hins vegar. Markmið verkefnisins er bæði að efla færni starfsfólk og stuðla að auknu og bættu samstarfi milli þjónustuaðila. MARISSA-verkefnið hlaut styrk úr áætlun Evrópusambandsins um réttindi, jafnrétti og borgararétt.
FASA
Evrópskt samstarfsverkefni um áfengis- og vímuefnavanda og ofbeldi í nánum samböndum
RIKK er aðili að evrópska samstarfsverkefninu FASA (Free from Addiction, Safe from Abuse) ásamt stofnunum í Grikklandi, Eistlandi, Norður-Írlandi og Spáni. Verkefnið beinir sjónum sínum að hinum samþætta vanda að verða fyrir ofbeldi í nánu sambandi og glíma við áfengis- og vímuefnavanda. Áhersla verkefnisins er á þjónustuaðila fyrir konur sem verða fyrir ofbeldi í nánum samböndum, að efla færni og þekkingu þeirra og gera þá þannig betur í stakk búna til að takast á við þennan tvíþætta vanda.
Nýjasta fréttabréf FASA-verkefnisins má nálgast hér: Fréttabréf FASA
Reynsla kvenna af fíknimeðferð
með tilliti til líðanar og öryggis í meðferð, árangurs meðferðarinnar og úrræða í boði
Markmið rannsóknarinnar er að skoða reynslu kvenna af vímuefnameðferð hér á landi með tilliti til líðanar og öryggis í meðferð, árangurs meðferðarinnar og úrræða í boði. Undirmarkmið er að skoða sögu kvennanna með sérstöku tilliti til erfiðra upplifana í æsku og hvort að þær eigi sögu um ofbeldi í nánum samböndum.
Meðferð við vímuefnafíkn á Íslandi hefur að miklu leyti byggst á hugmyndafræði 12 spora samtaka hingað til, ef meðferð á Landspítala er undanskilin. Þar er hugræn athyglismeðferð grundvöllur meðferðarinnar. Þó að nokkrar breytingar hafi verið á áherslum meðferðarinnar á undangengnum árum og kynjasjónarmið séu nú tekin til skoðunar í meðferðinni er engin meðferð í boði fyrir konur eingöngu þar sem byggt er á nýjustu þekkingu um kynjamiðaða meðferð og lengst af hefur skort á þekkingu á sértækum vanda kvenna með fíknivanda og aðferðum við að taka á þeim vanda. Þetta er ekki séríslenskt vandamál en eins og kemur fram hjá Salter og Beckenridge (2014) virðist sem sú þekking sem til er á kynjamiðaðri meðferð ekki vera nýtt í meðferðarstarfi og því einkennist mikið af meðferðarframboði af kynjablindu. Rannsóknin horfir því til þeirrar þekkingar sem til er um kynjamiðaða og áfallameðvitaða meðferð og upplifun þjónustuþega í meðferð.