Jafnréttisstofa, Velferðarráðuneytið, Rannsóknastofnun í barna- og fjölskylduvernd við HÍ og Rannsóknarmiðstöð gegn ofbeldi við HA standa fyrir ráðstefnu og fræðsludegi um kynbundið ofbeldi. Að þessu sinni verður sjónum beint að heilbrigðisstéttum en kynbundið ofbeldi er alvarlegt heilbrigðisvandamál sem mikilvægt er að vinna bug á.

Ráðstefna fer fram í Öskju í HÍ miðvikudaginn 1. júní frá kl.13-16.

Dagskrá

13:00- 13:15 Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra setur ráðstefnuna

13:15- 13:35 Elísabet Karlsdóttir, verkefnisstjóri hjá Rannsóknastofnun í
barna- og fjölskylduvernd : Niðurstöður rannsókna og hvað
svo?

13:35- 13:55 Sigríður Halldórsdóttir, prófessor við Háskólann á Akureyri:
Ofbeldi, konur og mannréttindi

13:55- 14:15 Ólafur Örn Bragason, sálfræðingur hjá Ríkislögreglustjóra og
Fangelsismálastofnun en starfar sjálfstætt við mat og
meðferð ungra gerenda kynferðisbrota : Börn og unglingar
sem sýna skaðlega kynhegðun

14:15- 14:35 Kaffi

14:35- 14:55 Magnús Ólason, læknir á Reykjalundi: Konur, verkir og
ofbeldi

14:55- 15:15 Ástþóra Kristinsdóttir, ljósmóðir og hjúkrunarstjóri í
Heilsugæslunni Hvammi í Kópavogi: Áhrif heimilisofbeldis á
barnshafandi konur, fóstur og börn þeirra.

15:20- 15:40 Erla Kolbrún Svavarsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands:
Notkun klínískra leiðbeininga við að greina ofbeldi gegn
konum í nánum samböndum

15:40-16:00 Umræður