Bókin Á rauðum sokkum er komin út

Komin er út hjá RIKK og Háskólaútgáfunni bókin Á rauðum sokkum: baráttukonur segja frá.

Í bókinni segja tólf konur frá starfi sínu með Rauðsokkahreyfingunni fyrstu ár hennar, en haustið 2010 voru liðin 40 ár frá eiginlegum stofnfundi hennar árið 1970. Hver kona ritar sinn kafla og jafnframt leggur einn af frumkvöðlum hreyfingarinnar, skáldið Vilborg Dagbjartsdóttir, bókinni til tólf ljóð sem flest voru ort á áttunda áratugnum og eiga ríkan samhljóm með umfjöllunarefni frásagnanna.

Í tilefni af útgáfu bókarinnar var haldið útgáfuhóf í NemaForum í Hafnarhvoli við Tryggvagötu laugardaginn 12. nóvember. Þar var margt góðra gesta. Ber þar fyrstar að nefna frú Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta, Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, og Kristínu Ingólfsdóttur, rektor Háskóla Íslands, en þær veittu fyrstu eintökum bókarinnar viðtöku. Irma Erlingsdóttir forstöðukona RIKK, Rannveig Jónsdóttir rauðsokka, Halla Tryggvadóttir barnabarn rauðsokku og Mörður Árnason sonur rauðsokku héldu ávörp, Vilborg Sigurðardóttir og Guðrún Hallgrímsdóttir lásu úr sínum köflum í bókinni, Vilborg Dagbjartsdóttir las ljóð og loks spiluðu Olga Guðrún Árnadóttir og Valgeir Guðjónsson og sungu fyrir gesti. Var meðal annars sungið gamla baráttuljóðið Áfram stelpur og tók salurinn undir. DV sagði frá hófinu og útgáfunni í blaði sínu eftir helgina og birti meðal annars nokkrar skemmtilegar myndir úr hófinu.

Stofnun Rauðsokkahreyfingarinnar markaði tímamót í sögu íslenskra kvennahreyfinga og hún á skilið heiðurssess í íslenskri sögu og samfélagsvitund. Rauðsokkar börðust fyrir fjölmörgum málum sem þykja sjálfsögð réttindi í dag, svo sem dagvistun barna giftra foreldra og frjálsum fóstureyðingum, oft með nýstárlegum baráttuaðferðum. Auk þess gaf hreyfingin hefðbundnu félagsformi langt nef og starfaði samkvæmt sínum eigin, athyglisverðu formerkjum. Höfundar bókarinnar Á rauðum sokkum segja frá þátttöku sinni í jafnréttisbaráttunni en einnig frá persónulegum uppruna sínum og því hvernig þær vöknuðu til vitundar um óréttlætið sem konur voru beittar. Bókin er því einnig merkileg heimild um andrúmsloftið í þjóðfélaginu og stöðu og sjálfsvitund kvenna fyrir tíma rauðsokka.

Höfundar bókarinnar eru:

Auður Hildur Hákonardóttir
Björg Einarsdóttir
Edda Óskarsdóttir
Elísabet Gunnarsdóttir
Gerður G. Óskarsdóttir
Guðrún Ágústsdóttir
Guðrún Friðgeirsdóttir
Guðrún Hallgrímsdóttir
Helga Ólafsdóttir
Lilja Ólafsdóttir
Rannveig Jónsdóttir
Vilborg Dagbjartsdóttir
Vilborg Sigurðardóttir

Vilborg Sigurðardóttir ritar jafnframt inngang bókarinnar, Dagný Kristjánsdóttir skrifar eftirmála og ritstjóri er Olga Guðrún Árnadóttir. Bókin er yfir 400 blaðsíður í kiljuformi og prýdd fjölda mynda.