Rannsóknir & útgáfa

RIKK – Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum stendur að og tekur þátt í fjölda rannsóknarverkefna á sviði kvenna- og kynjafræða. Rannsóknastofnunin hefur lagt áherslu á að styðja fræðimenn við rannsóknir sínar og hún hefur skipulagt og búið til grundvöll fyrir rannsóknarstarf. Rannsóknastofnunin hefur verið umsjónaraðili við gerð verkefna og ritgerða á sviði kvenna- og kynjafræða. RIKK styður einnig verkefni og aðgerðir sem ætlað er að jafna hlut kynjanna í þjóðlífinu.

 

Hér má sjá nánar um bókaútgáfu, skýrslur og rannsóknir.